Hvetja bæjarbúa til að skreyta og lýsa upp skammdegið í Suðurnesjabæ
Í ár líkt og undanfarin tvö ár verða veittar viðurkenningar fyrir vel skreytt og skemmtileg jólahús í Suðurnesjabæ. Ferða-, safna- og menningarráð bæjarins mun halda utan um verkefnið og er gert ráð fyrir að tilkynna um valið þriðjudaginn 22. desember.
Ráðið mun þó ekki eitt stýra valinu því íbúar Suðurnesjabæjar geta sent inn ábendingar sem ráðið tekur svo tillit til í vali sínu. Þá er sérstaklega óskað eftir áliti frá yngri kynslóðinni.
Þeir sem vilja senda inn ábendingar er bent á ábendingakerfi Suðurnesjabæjar á heimasíðu sveitarfélagsins en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða hringja í síma 425 3000.
Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hvetur íbúa Suðurnesjabæjar til þess að lýsa Suðurnesjabæ upp í skammdeginu og framkalla saman sannkallaða hátíðarstemningu.